Hate the Game
Tónlist
18.02.2007 16:35:39 / Player

18 Feb.

Já já nú er komið að því að ég skrifa eitthvað hérna niður. Hvað er að frétta af mér hummmm Ég er byrjaður í öðru strafi og leggst það bara mjög vel í mig,,, góð vinnuaðstaða, frábærir vinnufélagar og síðan er árshátiðin að fara smella á og verður hún haldin í Danmörkum og mér er boðið með ( átti ekki von á því)....

Karlotta litla prinsessan mín er flutt til Grindavíkur og hefur hún það gott þar, komin með stórt herbergi og í skemmtilegum skóla (henna sögn) búinn að eignast nýjar vini og  ( kærasta ) en það er það nýjast hjá henni að vera skotin í strákum. hehehehehe.
Þetta er hinn fallegasti bær og gæti ég hugsað mér að vera þarna í eittvern tíma ef ég væri að fara flytja.

Giftingar undirbúningurinn er í fullum gangi og erum við kominn með sal en það er leyndó, Hrund er búin að máta kjóla og er að ákveða hvaða kjól hún velur.

Veit ekki hvað ég á að skrifa meira.

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 23:10:51 / Hrundsla

Ekki alveg besti dagurinn!!!!

Morguninn byrjaði upp á slysó í röngen og læti bara.....já við Siggi minn vorum að fíflast og það endaði svona líka rosa vel eða þannig....en sem betur fer var hendin ekki brotin læknirinn sagði að ég ætti eftir að vera svaka marin og að ég ætti að kæla þetta vel og taka bara nóg af verkjalyfjum og ég á að hafa einhvern ljótan teyjusokk um hendina...ég vildi óska þess að þeir væru til í bleiku þá yrði mín sko glöð:):) en nei ég gerði þau svakalegu mistök að fara bara í vinnuna og afleiðingaranar voru þær að hendin á mér bólgnaði tvöfalt og þegar að ég kom í vinnuna til Siggi þá hélt hann að það mundi þurfa að klippa trúlofurnarhringinn af mér....ég held nú síður ég tek þessu mjög alvarlega hringurinn minn fer ekki fet......þar fyrir utan er ég komin með nýja vinnu hjá Elko ekkert smá ánægð með það nema það að helvítis tussu leikskólastjórinn er bara með einhverja stæla og ætlar að halda mér til 1.des ef hún getur hún er eitthvað að babbla im að ég sé með 3.mánaða uppsagnarfrest en ég er nú búin að vera að lesa hérna á VR síðunni og samkvæmt henni er það bara bull....það er allavega alveg á hreinu að ég ætla sko ekki að missa vinnuna í Elko útaf þessari kellingu:evil::evil::evil:

En allavega verður dagurinn á morgun betri við erum nebblega fara að heimsækja sætustu fjölskyldu í heimi þ.a.e.s Emilíu og Gogga sætu snúllana þeirra einn alveg glænýr, hlakkar ekkert smá til:lol::lol::lol:

Jæja ætla að segja þetta gott í bili við Einína skvísa erum heima hjá henni að horfa á hryllingsmyndir og ætlum að halda áfram að horfa.....

Eigiði frábæra helgi elskurnar og verið öll góð við hvort annað :):):)

Hrundin out!!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 23:05:15 / Hrundsla

Viðbjóður.....

Ég er hérna heima hjá henni Einínu minni og þar er hryllingsmyndamaraþon við erum að horfa á Saw 1 og 2 og ég er að tala um það eru ógeðslegar myndir MY GOD....Jæja loksins erum við hjúin bara tvö heima í kotinu hún Karlotta fór til frænku sinnar yfir helgina okkur veitti nú ekki af því að fá smá tíma fyrir okkur:):):)Þó að það sé samt alltaf gaman að hafa skvísuna hjá okkur:):):)Heyrði loksins í Hönnu áðan það er svo langt síðan að við vorum bara komnar með fráhvarfseinkenni:S:S:S:S

Jæja ætla að fara aftur að horfa á myndirnar með skvísunum:cry::cry::cry:

seeya

Hrundin


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 21:57:47 / Hrundsla

Loksins,loksins

Jæja mín er loksins komin í sumarfrí og í heilan mánuð takk fyrir pent:):) Helgin var nú voða róleg á Föstudag náði ég í hana Karlottu okkar og verður hún hjá mér í sumarfríinu voða gaman ég held að ég hafi verið sofnuð um kl.22. Svo á laugardaginn þá fórum við dúfurnar að kaupa ný blöndunartæki á baðið loksins:) Það er orðið svolítið þreytt að geta ekki einu sinni skolað sápuna úr hárinu......ekki alveg fyrir mig sem er nú vön svo góðu:) Síðan á lau.kvöldinu fór ég að hitta stelpurnar úr vinnunni og það var ekkert smá gaman við pöntuðum okkur mat saman og vorum bara að spjalla fram eftir um allt og milli himins og jarðar.....þetta var það helsta sem gert var um helgina.....Jæja nú er komin tími til að ég taki mig á all svaðalega á að rækta vinkonur mínar og þá sérstaklega hana Einínu mínu þetta stendur allt til bóta ástin mín ég lofa hann Siggi er búin að hundskamma mig fyrir að vera svona léleg í þessu. Ég ætla núna að fara að koma mér og horfa á CSI.... Ég læt heyra í mér fljótlega aftur:):):) See Ya

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 19:51:23 / Player

Tími til komin:)

Loksins læt ég í mér heyra betra seint en aldrei er málsháttur sem er í miklu uppáhaldi hjá mér:)Þetta er sem sagt ég Hrund ég fékk að nota Sigga vefstjórn af því að minnisleysi er að hrjá mig eins og svo marga aðra ég er búin að gleyma notendanafninu mínu og lykilorðinu en ég man það vonandi fljótlega.

Já veikindi búin að vera að pirra mig all svaðalega þ.e.a.s strepptakokkar eru kominir í heimsókn til mín ég veit ekki hver bauð þeim í heimsókn það var allavega ekki ég:evil: Loksins er stelpukvöldin á skjá einum byrjuð mér til mikillar skemmtunar að horfa á Beverly Hills og MelrosePlace sem voru alveg heilagir á sínum tíma og eru það enn.

Siggi er alveg að missa sig af því að við erum ekki með sýn sem betur fer fyrir mig ég gæti alveg ælt útaf þessu HM dæmi......

Haldiði að hann elskulegi faðir minn hafi ekki farið niður á skeljarnar og beðið konuna sína um að giftast sér:) Hann er svo krúttlegur hann pabbi minn.....Hann er samt búin að lofa mér að gifta sig ekki sama dag og ég og Siggi:)

Jæja það er komið nóg í bili við Hanna erum að elda þannig að ég verð að fara...

  


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 21:18:20 / Player

HEY HEY

Heil og sæl
 Siggi hérna... loksins er ég er kominn með netið hingað í sveitina í Grafarvogi en hérna er mjög fínt vera eins og er.... Allt flott að frétta héðan frá mér, maður er bara að vinna á fullu og búinn i skólanum út sumarið en ég reikna með því að ég skelli mér í kvöldskóla næsta haust en það verður bara að koma í ljós. Maður er orðinn svo mikið tækja frík að hálfa væri nóg, geri ekki annað en að velta mér uppúr því hvað er það besta sem er verið að framleiða og spjalla um LCD og Plasma tæki allan daginn enda er þetta nú líka áhugamál hjá manni. Hreinlega elska þessi tæki og allt sem að þeim koma, Skil samt ekkert í mér að eiga þetta ekki sjálfur!!!!  Það er æðislega gaman að vera í nýju vinnunni enda er maður líka kominn í réttu hillu núna en ég er alltaf með þeim top5 sölumönnum í keðjunni en það vinna þarna 150 sölumenn.


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 00:39:31 / Hrundsla

Byrjum að flytja á morgun:) JIBBÝ

Já við fengum íbúðina afhenta núna áðan og erum ekkert smá sátt við áttum ekki að fá hana fyrr en 21.apríl þannig að við erum alveg í skýjunum.Spennan er alveg að drepa okkur þannig að það verður byrjað snemma í fyrramálið:) Hún Hanna okkar er búin að vera svo góð að hýsa okkur hjúin af því að ég er búin að pakka öllu sem að ég hefði þurft að nota ég er nebblega stundum svo óskipulögð af því að mér liggur alltaf svo á þegar eitthvað spennandi er að gerast eins og flestir vita þá byrjað ég að pakka fyrir spánarferðina okkar síðasta sumar einu og hálfum mánuði fyrr og það er ekki lítið búið að gera grín af mér útaf því:)

Það verður nú eitthvað um netleysi til að byrja með þannig að ég blogga aftur þegar að við fáum netið.....Jæja ég ætla að reyna að fara að lúlla:)

See y´all


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 21:00:04 / Hrundsla

Loksins loksins kom að því:)

Sælt og blessað verði fólkið:)

Já það kom að því að við Siggi minn keyptum okkur íbúð já íbúð:) Og ekkert smá flott passlega stór penthouse íbúð og við erum alveg í skýjunum það sem meira er að við erum að fara að flytja ettir viku já við fáum afhent 21.apríl við erum alveg að fara yfir um:):):) Það verður samt pínu erfitt að yfirgefa æskuheimilið mitt og hana elskulegu móður mína sem ég hef búið með alla ævi og höfum alltaf verið tvær þangað til fyrir einu og hálfu ári:):)Það verður mjög skrítið að hafa ekki mömmu hjá mér alla daga allan daginn.En nú tekur annar kafli við í lífinu með honum Sigga mínum sem ég get ekki beðið eftir:lol::lol::lol:

Annars er ég bara búin að vera lasin ógó ömurlegt en ég er loksins komin aftur í vinnu það var ekkert smá gaman að hitta litlu krílin mín aftur þau eru algjörir englar þessar elskur:):)

Jæja þetta er orðið gott í bili við erum að fara í ammæliskaffi þannig að ég verð að fara en ég ætla nú að fara að vera virkari þátttakandi í bloggheiminum:):)

Hrundin Out


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 23:02:00 / Hrundsla

Já svona var nú helgin....

Fös...Eftir vinnu fórum við Hanna eitthvað að vesenast á meðan Siggi var með krakkana sem betur fer var hann naumlega ennþá með geðheilsu þegar að við loksins komum heim eftir að hafa eitt 1 og 1/2 tíma í bílalúgunum hjá Mc donalds og KFC. Við Hanna vorum bara heppnar að vera ekki étnar þegar að við komum af því að það voru allir orðnir svo svangir mætti halda að þau hefðu ekki borðað í viku:) Eftir matinn fór hann Siggi á Ground Zero að spila á meðan að við Hanna fórum að baka fyrir ammælið hjá Lilju og Daníel.Ég get sko sagt ykkur það að tvær ljóskur að baka er ekki góð blanda vinur hennar Hönnu kom til okkar og hann horfði bara á okkur og hló og þegar Hanna bauð honum að kveikja á tvinu þá sagði hann bara neinei það er alveg nógu mikil skemmtun að horfa á okkur reyna að klóra okkur út úr bakstrinum:lol::lol: en þrátt fyrir þetta allt þá heppnaðist þetta bara mjög vel okkur ljóskunum er ekki alls varnað:):):)

Lau...Þá var farið í skírn hjá norsku prinssessunni henni Kirvil Kristine og var það ekkert smá gaman hún er án efa fallegasta barn sem fæðst hefur:):):) Um kvöldið kom svo öll fjölskyldan saman að borða og hafa gaman og ég tók hana Kirvil og dúllaðist með hana og fann það algjört ÆÐI eggjastokkarnir alveg á fullu:lol::lol: Hún er svo mikil dúlla...

Sun....Var slappað af farið heim til Hönnu og elduðum saman síðan komum við heim og viti menn að hún Kirvil litla var hérna ásamt fleirum og ég var að snúllast með hana þangað til hún fór:lol::lol::lol: ógó skemmtó

Jæja þetta er orðið ágætt í bili....

See Ya H


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 22:39:31 / Hrundsla

Það hlaut að koma að því:):)

Jæja þá hef ég tekið málin í mínar hendur og ákveðið að byrja að blogga finnst að minn elskulegi unnusti er ekki alveg að standa sig.....hehehehehe:) Hún Lilja litla stóra á ammæli á morgun og er hvorki meira né minna en 6 ára sem að þýðir að hún Hanna mín er að verða gömul.....:) alveg 25 ára.....mér finnst ég samt alveg að verða gömul af því þann 8 febrúar 2006 varð Gunsa litla systir mín 17 ára og þann 15 febrúar 2006 fékk hún litla stóra sæta yndislega systir mín bílpróf......Faðu varlega í umferðinni ástin mín:):):) Annars er það að frétta af Sigga mínum að hann er algjörlega húkkt á einhverjum tölvuleik þessa dagana þrátt fyrir mínar vinsamlegu ábendingar að þessi blessaði leikur sé alveg ömurlegur þá er ág farin að halda að þær fari bara inn eitt eyra og út um hitt....Jæja ætla að fara að horfa á Will og Grace þættina í tölvunni sem eru alveg að gera sig þessa dagana þó að EKKERT komi í staðinn fyrir Friends og Sex and the City en þeir eru nálægt:):):):)

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 16:33:22 / Player

Dóri á afmlæli

Heil og Sæl

Núna er ég heima að chilla all svaðalega, við erum að fara í afmæli til Dóra Bróðir í kvöld og verður það 24 tíma djamm en við erum að fara á 2 bílum, eins og flestir vita þá á hann heima í keflavík.
 Ég, Dóri bróðir, Jón bróðir og Snorri þýski ætlum að mála bæinn rauðan allavegna Röggu systir hehehehehehe en ef hún sér okkur alla saman að taka á því á hún eftir að verða rauð af reiði hehehehehehehee

Ég var að horfa á landsleikinn Ísland - Frakkland og verð ég að segja að strákarnir stöðu sig með prýði.  Frakkland er erfitt lið og annað sem við verðum að taka til skoðunar og ekki má gleyma en Íslenska landsliðið hefur aldrei náð svona meti að vinna 16 leiki í röð þrátt fyrir þetta ósanngjarna tap á móti frökkum, þeir eru ennþá strákarnir mínir :klikk:  :klikk:  :klikk:  :klikk:

En já mig langar að koma því að hérna í restina ....  Dóri Bróðir Til Hamingju Með Afmælið Strákur Og Mundu Að Þú Ert Janfn Geðveikur hehehehehehehe  Mundu að mér þykir væntum þig.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 23:10:30 / Player

Smá fréttir

Já þá er komið að því að ég uppfæri dagbókina mína en ég er búinn að vera helling af hlutum, ég er búinn að vera með Karlottu mikið hjá mér og hafa það mjög gott, átti yndisleg jól og áramót.

Kallinn er kominn í skóla og fýla það í botn en það er mjög skrýtið að vera byrjaður aftur í skólan en það er gaman. Silli félagi er með mötuneytið þarna þannig að maður er í góðum félagskap allan daginn.

Eins og allir vita þá er ég og Hrund búin að trúlofa okkur og erum mjög sátt og hamingju söm saman. Eins og er maður að leita að vinnu með skóla og sem á við mann (helst eitthvað sem tengist rafvirkjun) þar sem ég er að læra það, maður samt má ekki vera of von góður.

Ég er alltaf að spila leikinn WOW og á ekkert líf á milli þess en ég vona bara að Hrund fari ekki að missa það útaf því hehehehehehehehe.

Annars er ekki mikið af mér að frétta annað en maður er á kafi í námi og vera ástfanginn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 13:07:23 / Player

Update....

Jæja gott fólk smá meira fréttir af keppanum en ég er að hætta reykja og það er dagur 2 hjá mér núna og ég er að missa það en ég sé að ég get þetta alveg finn að líkaminn er að skila þessum viðbjóði út....... Annað ég er búinn að skrá mig í skól og er á leiðinni í Iðnskólan í reykjavík og get varla beðið en þar mun ég vera í góðra vina hóp en ég þekki nokkra nema þar og síðan er það nú ekki verra að vera með Karlottu við hliðina á sér í skóla hehehehehehehehe en hún er í Austurbæjarskóla......

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra en ég seti nýja könnun upp og endilega hjálpa mér!!!!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.11.2005 13:21:18 / Player

Fréttir WoW

Komið þið sæl og blessuð, núna er ég heima með stelpunar mínar og hef það mjög gott!!!!! ég er búinn að vera mjög upptekinn að vinna í sjálfum mér á Reykjalundi en mér var boðið að fara þanngað fyrir 3 vikum og hef þetta gengið vonum framar:haha: 

Annars er strákurinn búinn að taka tölvuna sína í gegn og var kominn tími á það en hún er loksins orðin eins og ég vill hafa hana, ég er farinn að spila tölvuleik sem er kallaður WOW og ég er rosalega hooked á honum og gæti spilað hann sólahringum saman en það er mjög langt síðan að ég fann fyrir svona tilfinningu gagnvart tölvuleik hehehehehehehehehe :P

Annars er þetta búið að vera skrítið að vera á Reykjalundi og vera svona ungur, vera ekki með kærustana sína hjá sér á kvöldin, en annars er þetta bara eins og hver önnur vinna nema ég fer í leikfimi 4 sinnum á dag.......  stundum 5....

Verð að hætta núna er að fara skora á dóttir mína í keilu og ég skal vinna MU HA HA HA HA
Siggi

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 12:59:04 / Player

Fréttir #####

Góðan daginn

Núna er drengurinn á Reykjalundi og verið að skoða á mér bakið og gengur það bara nokkuð vel síðan ekki síst að ég er að berjast við það að hætta að reykja og gengur sú barátta vel mikið er það erfitt, ég er stundum alveg að missa vitið á þessu helvíti en vonandi hættir þetta eitthver tíman hjá mér því að ég frekar byrja að reykja aftur en að upplifa þessa fíkn svona oft á dag....

Fór í bústaðinn síðustu helgi mikið var að nú gaman enduðum 10 stk þarna og mikið djamm og mikið stuð alskonar leikir sem við fórum í og svoleiðis rugl, skemmtilegast af öllu var að moka bílana upp úr festu en þeir voru 3 sem festust og við mokuðum mikið. verð að hætta núna klára seinna.
BLEE BLEE


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6